Helga Margrét hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði
Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona var ein af 26 nemendum til að hljóta styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Nemendurnir sem allir hefja nám í HÍ í haust fá styrk sem nemur 300.000 kr. og niðurfellingu skráningargjalda á fyrsta ári.
Alls bárust 77 umsóknir um styrk en 17 stúlkur og 9 strákar hlutu styrk úr sjóðnum. Um Helgu Margrét segir:
Helga Margrét Þorsteinsdóttir brautskráðist frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vorið 2011 og var þá semídúx skólans. Helga Margrét er mörgum að góðu kunn enda hefur hún verið í hópi fremstu frjálsíþróttamanna þjóðarinnar undanfarin ár og vinnur nú að því að tryggja sér keppnisrétt í sjöþraut á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar. Helga Margrét hyggst hefja nám í næringarfræði í haust.
Heildarlista yfir styrkþega Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta HÍ í ár er að finna hér.