Helga Margrét í baráttu í Svíþjóð

Helga Margrét Þorsteinsdóttir Ármanni hóf keppni í sinni fyrstu sjöþraut á þessu keppnistímabili í gær í Lerum í Svíþjóð. Íslandsmet Helgu í sjöþraut í Kladno fyrir þremur árum er 5.878 stig. Evrópumeistaramóts lágmark er 5.920 stig og Ólympíulágmarkið er 5.950 stig, auk þess að 6.000 stigin eru ekki langt undan. Helga er ásamt þjálfara sínum Agne Bergvall á svæðinu auk aðstoðarfólks.

Vésteinn Hafsteinsson segir að Helga sé í góðu formi og til alls líkleg. -Þessi þraut er þó hugsuð frekar svona sem upphitun fyrir Kladno þrautina sem er eftir þrjár vikur í Tékklandi, segir Vésteinn.

Gengið var misjafnt eftir fyrsta daginn en Helga hljóp á 14.76sek í 100m grindahlaupinu sem gaf henni 874stig en í metþrautinni var hún mun fljótari og hljóp á 14.19sek sem gefur 952 stig og er hennar besti árangur, þannig að hér missti hún dýrmæt stig.

Næsta grein var hástökk og stökk Helga þar 1.73m eða það sama og í metþrautinni og gefur sá árangur 891stig en hennar besti árangur er 1.78m síðan í vetur.

Í kúluvarpinu náði Helga aðeins 13.84m sem er betra en í metþrautinni og gefur 783stig en er langt undir getur þar sem Helga á best 15.33m síðan í vetur og bætti sig í síðustu viku í 15.08m utanhúss.

Í 200m hlaupinu hljóp Helga svo á 25.75sek og fékk fyrir það 819 stig en í metþrautinni var hún á 24.77sek sem er hennar besti árangur. Samanlagt er Helga því með 3.367 stig eftir fyrri daginn. Í metþrautinni var hún með 3.520 stig eftir fyrri daginn.

Þrátt fyrir „ekkert sérstakt“ gengi í gær hefur Helga ennþá möguleika á að bæta sig og ná bæði Evrópumeistaramóts lágmarki 5.920 stigum og Ólympíulágmarki 5.950 stigum.

Heimasíða mótsins er:
Þar er hægt að finna tímaseðil og keppendalista en 15 keppendur eru í sjöþrautinni.

Fleiri fréttir