Helga Margrét í baráttu í Tékklandi
Húnvetningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir keppir nú í sjöþraut í Kladno í Tékklandi en í gær keppti hún í 100m grindahlaupi og tókst frekar illa upp og hljóp á 14.97 sek. en hennar besti árangur er 14.19sek. Svo keppti hún í hástökki og stökk 1.77m sem er persónulegt met en kúlunni varpaði hún undir getur eða 13.68m en hennar besti árangur er 15.01m. Í 200m hlaupi rann hún brautina á 26.05sek.
Eftir daginn er hún í sjötta sæti í keppninni með samanlagt 3.355 stig, 196 stigum lakara en hún gerði í metþrautinni sinni. Tatyana Chernova frá Rússlandi er efst með 3.882 stig.
Í dag mun hún keppa í langstökki, spjótkasti og 800m hlaupi og hefur Helga ennþá möguleika á að setja Íslandsmet og ná lágmarki á HM í Kóreu en Vésteinn Hafsteinsson þjálfari Helgu segir að þrátt fyrir að þrjár greinar í gær hafi ekki verið nógu góðar þá er möguleikinn til staðar sökum þess að síðast þegar hún setti gildandi met 5.878 stig þá var seinni dagurinn mun lakari. Við skulum vona það besta.
Það er hægt að fylgjast með gangi mála á www.vesteinn.com