Helga Margrét í hörkukeppni í Ostrava í Tékklandi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir sem nú keppir fyrir Ármann mun hefja keppni í sjöþraut á Evrópumeistaramóti undir 23 ára í dag í Ostrava í Tékklandi. Það eru íþróttamenn og konur sem eru fædd 1989-1991 sem taka þátt. Helga er fædd 1991 og verður því aftur með á þessu móti eftir tvö ár.
Helga á best 5.878 stig í sjöþraut og er búin að fara í 5.856stig á þessu ári. Helga er í sjöunda sæti á keppnislistanum en sú sem er efst er Yana Maximava frá Hvíta Rússlandi með 6.094 stig.
Vésteinn Hafsteinsson þjálfari Helgu segir hana tilbúna í slaginn en hún þarf að fara í 5.950 stig til þess að ná lágmarki á HM í Daegu sem fram fer í lok ágúst.
Auk Helgu Margrétar er Hafsteinn með þrjá kringlukastara á mótinu, þá Brett Morse GBR 64.49m sem er annar á listanum, Priidu Niit EST 60.69m sem er sjöundi og Martin Kupper EST 60.18 sem er níundi. Í kringlukastkeppninni mun Blake Jakobsson sonur Óskars Jakobssonar sem gerði garðinn frægan hér áður fyrr keppa fyrir íslands hönd en hann á best 56.95m og er Eggert Bogason hans þjálfari.