Helga Rós á hádegistónleikum

Skagfirska söngkonan Helga Rós Indriðadóttir kom fram á hádegistónleikum í Hafnarborg, ásamt Antoníu Hevesí og fluttu þær aríur nokkurra vonsvikinna kvenna. Yfirskrift tónleikanna var „Andlit ástarinnar“ en aríurnar eru úr óperum og óperettum eftir Verdi og Strauss.

Eins og fram kom í ítarlegu viðtali við Helgu Rósu í jólablaði Feykis í desember sl. býr Helga Rós í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og stundar kennslu við Tónlistarskóla Skagafjarðar og stjórnar Skagfirska kammerkórnum.

Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Helga skemmtilegt að koma suður og halda tónleika sem þessa. „Það er í raun nauðsynlegt. Ég kom einnig suður í nóvember og þá fluttum við verk eftir Verdi og Wagner,“ segir Helga og bætir því við að það sé erfitt að helga sig því að vera einungis söngvari hér á landi. „Nú kem ég suður og einbeiti mér alfarið að söngnum í nokkra daga. Svo fer ég aftur heim að stjórna og kenna,“ segir Helga Rós í samtali við Morgunblaðið.

Fleiri fréttir