Helgi Freyr leikur með Tindastól í vetur

Í gær skrifaði Helgi Freyr Margeirsson undir samning við Tindastól um að hann leiki með liðinu næsta vetur í 1. deildinni í körfuboltanum. Helgi hefur leikið með félaginu undanfarin ár og verið lykilmaður en óvíst var hvað hann myndi gera eftir að liðið féll úr úrvalsdeild síðasta tímabil. Helgi segir að komandi leiktíð verði væntanlega áhugaverð.

-Leikmannahópurinn er breyttur og við erum að spila í öðru umhverfi, 1.deildin er ekki alveg sú sama og úrvalsdeildin, en áskorunin er samt sú að við ætlum að fara upp, segir Helgi en bendir á að það séu nokkur félög í deildinni sem þarf virkilega að berjast við til þess að það markmið náist. -Ég hef trú á því að við höfum mannskapinn og getuna til að komast upp, segir Helgi Freyr.

Í kvöld klukkan 20 verður haldinn aðalfundur körfuknattleiksdeildar Tindastóls í Vallarhúsinu á Sauðárkróki og má búast við hörkufundi þar sem tveir einstaklingar hafa gefið það út að þeir bjóði sig fram til formanns, Stefán Jónsson og Jón Ingi Sigurðsson.

Á fundinum verður lögð fram tillaga frá stjórn um að færa reikningsár deildarinnar fram svo aðalfundir verða haldnir strax eftir að körfuknattleikstímabili lýkur og ný stjórn geti farið að starfa fyrr. Áhugafólk um körfubolta er hvatt til að mæta á aðalfundinn í kvöld og hafa allir atkvæðarétt sem skráðir eru félagar í Tindastól.

Fleiri fréttir