Helgi Rafn útnefndur Dugnaðarforkurinn
Á heimasíðu Tindastóls segir frá því að í uppgjöri á seinni hluta Iceland Express deildarinnar í dag, var tilkynnt að Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls, hefði verið valinn Dugnarðarforkurinn. Sú viðurkenning kemur engum stuðningsmanni Tindastóls á óvart.
Sérstök valnefnd körfuboltaspekinga velur úrvalslið bæði fyrri og seinni hluta Íslandsmótsins, besta leikmanninn og dugnaðarforkinn auk besta þjálfarann. Valið fyrir seinni hlutann var tilkynnt í dag.
Í úrvalsliðinu eru þeir Pavel Ermolinskij og Marcus Walker úr KR, Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Jón Ólafur Jónsson úr Snæfelli og Sigurður Gunnar Þorsteinsson úr Keflavík.
Besti leikmaður seinni hlutans var valinn Jón Ólafur Jónsson Snæfelli og besti þjálfarinn Hrafn Kristjánsson KR.
Þá var Helgi Rafn valinn Dugnaðarforkurinn eins og áður hefur komið fram og besti dómarinn var valinn Sigmundur Már Herbertsson.
Helgi Rafn komst ekki suður sjálfur til að taka við viðurkenningunni, en mjög hvasst hefur verið í dag og vart skemmtilegt ferðaveður. Það var hins vegar systir hans, Sigríður Inga Viggósdóttir, sem tók við viðurkenningunni fyrir stóra bróður.