Héraðsmót UMSS í sundi verður 23. júní á Hofsósi

Héraðsmót UMSS í sundi verður haldið 23. júní á Hofsósi, mótið byrjar kl.18-20, upphitun kl. 17:30.  Keppt er um Grettisbikarinn og sæmdartitilinn Sundkappi Skagafjarðar en fyrsta keppnin var háð árið 1940 og er þetta því sjötugasta og fyrsta aldursár keppninnar.

Á heimasíðu Tindastóls segir að síðar hafi Kerlingin bæst við og uppá nútímavísu eru því bæði Sigurjón Þórðarson og Sunneva Jónsdóttir Sundkappar Skagafjarðar 2010 Sigurjón í sjöunda sinn en Sunneva í sitt fyrsta skipti.

Áætlað er að vera með varðeld og grill í fjörunni síðar um kvöldið og hver veit nema fólk baði sig upp úr dögginni um nóttina en þá líður hin kyngimagnaða Jónsmessunótt.

Fleiri fréttir