Héraðsþing USVH haldið í 78. sinn

Frá ársþinginu. Mynd: usvh.is
Frá ársþinginu. Mynd: usvh.is

78. Héraðsþing USVH var haldið sl. miðvikudag, þann 20. mars, í Félagsheimilinu á Hvammstanga og sá Ungmennafélagið Kormákur um framkvæmd þingsins að þessu sinni. Á þingið mættu 27 aðilar frá öllum aðildarfélögum.

Á vef sambandsins kemur fram að miklar og góðar umræður hafi verið á þinginu um starf sambandsins. Stjórn kynnti meðal annars Handbók USVH sem er hluti af því að USVH geti gerst fyrirmyndarhérað ÍSÍ á næstu vikum og voru aðildarfélög hvött til að gerast fyrirmyndarfélög ÍSÍ.  

Undanfarin ár hefur stjórn USVH rætt og sett sér það markmið að íþróttahreyfingin á svæðinu sameinaðist um að þrýsta á sveitarfélagið til uppbyggingar á aðstöðumálum og að í stað þess að margar greinar væru að þrýsta á aðstöðu fyrir sína íþróttamenn myndu félögin sameinast um hvað það væri sem byrja ætti á. Í kjölfar skoðanakönnunar meðal íbúa Húnaþings vestra um aðstöðumál og niðurstöðu hennar sammæltust formenn aðildarfélaga USVH um að leggja fram meðfylgjandi tillögu á þinginu og var hún samþykkt samhljóða.  „Telur stjórn USVH að um sé að ræða tímamótatillögu þar sem öll aðildarfélög koma saman og sammælast um að hefja eigi uppbyggingu eins félags,“ segir á vef USVH.

Tillagan hljóðar svo:
78. Héraðsþing USVH haldið í Félagsheimilinu á Hvammstanga 20. mars 2019 þakkar sveitarfélaginu Húnaþingi vestra fyrir góðan stuðning og styrki til íþrótta- og æskulýðsstarfs en hvetur jafnframt sveitarfélagið til þess að setja fjármagn í stækkun og breytingu á hringvelli Hestamannafélagsins Þyts til þess að hann samræmist þeim kröfum sem gerðar eru í dag í keppni gæðinga. 

Á þinginu var einnig samþykkt að hvetja sveitarfélagið til að vinna að því að verða heilsueflandi samfélag og vera leiðandi í því á Norðurlandi vestra.

Engar breytingar urðu á stjórn nema þær að nýr varamaður kom inn, Þorbjörg Helga Sigurðardóttir fyrir hönd UMF. Hörpu.

Núverandi stjórn skipa:

Reimar Marteinsson, formaður, Ómar Eyjólfsson, gjaldkeri, Sara Ólafsdóttir, ritari, Halldór Sigfússon, varaformaður og Þórey Edda Elísdóttir, meðstjórnandi. Varamenn eru Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, Pálmi Geir Ríkharðsson og Þorbjörg Helga Sigurðardóttir.

Þau verkefni sem framundan eru hjá sambandinu eru útgáfa ársritsins Húna á vormánuðum, Kvennahlaupið í júní og svo er stefnt á á góða þátttöku á Unglingalandsmótinu á Höfn í Hornafirði og Landsmóti 50+ í Neskaupstað. Stjórn USVH hvetur alla til virkrar þátttöku á þessum mótum.

Nánar má lesa um störf þingsins á vef UMSV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir