Hestaíþróttamóti á Hólum lýkur í kvöld
Eins og fram hefur komið hér á Feykir.is stendur nú yfir opið mót í hestaíþróttum heima á Hólum. Keppni hófst kl 15 í gær og fór þá fram forkeppni í fjórgangi V1, fimmgangi V1, tölti T1 og slaktaumatölti T2. Í dag hefst keppni aftur kl 15:30 og má sjá dagskrá mótsins hér fyrir neðan.
Fimmtudagur 6. júní
15:30 100m skeið P2
16:00 B-úrslit Fjórgangur V1
B-úrslit Fimmgangur F1
B-úrslit Tölt T1
Hlé
18:30 Gæðingaskeið PP1
19:30 A-úrslit Fjórgangur V1
A-úrslit Slaktaumatölt T2
A-úrslit Fimmgangur F1
A-úrslit Tölt T1