Hestamenn í Húnaþingi halda uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún og Hestamannafélagsins Þyts verður haldin laugardagskvöldið 27. október nk. í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Samkvæmt heimasíðu Þyts verður þar matur, gleði og gaman.

Skemmtunin hefst stundvíslega kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:30 og þar verður sko stemming, segir á heimasíðu Þyts. Þórhallur Magnús Sverrisson sér um matinn og veislustjórn verður í höndum Ingvars Helga Guðmundssonar.

Á hátíðinni verða hinar ýmsu viðurkenningar veittar af Hrossaræktarsamtökum V-Hún, m.a. fyrir ræktunarbú ársins 2012 en eftirfarandi bú eru tilnefnd.

Efri Fitjar - Grafarkot - Lækjamót

Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, sími 4512465, og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 24. október. Greiða þarf fyrir miðana með reiðufé.

Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr. 6.500 og er matur, skemmtun og ball innifalið. Ef einhver vill einungis skella sér á dansleik, í syngjandi sveiflu með Klaufum sem hefst kl 00:00, þá kostar það 3.000 kr.

Loks er tekið fram að allir eru velkomnir á þessa frábæru skemmtun. „Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, gráta og hafa gaman,“ segir á heimasíðunni.

Fleiri fréttir