Hilmar Kára skaut strákunum í 8. liða úrslit
2. flokkur Tindastóls/Hvatar léku gegn Gróttu á laugardaginn í 16. liða úrslitum bikarkeppni KSÍ á Blönduósi. Strákarnir höfðu sigur í framlengingu eftir æsispennandi leik en strákarnir eiga síðan aftur leik í kvöld.
Gróttu menn komu sterkir til leiks og komust yfir á 13. mín leiksins en Atli Arnarsson jafnaði á 70. mín eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik ásamt bróðir sínum Árna. Jafnt var 1-1 eftir að lokaflautan gall og því þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni tók Hilmar Kárason að sér að vera hetja dagsins og skoraði tvisvar, fyrst á 98. mín og síðan á 120. mín, rétt áður en leikurinn var flautaður af.
Frábær frammistaða hjá strákunum en þeir eru komnir eins og áður sagði í 8. liða úrslit. Leikið verður laugardaginn 9. júlí nk. en ekki er vitað hverjir mótherjarnir verða fyrr en búið er að draga. Í pottinum eru mörg sterk lið eins og Haukar/Markaregn, Keflavík, Þór, Völsungur, Breiðablik/Augnablik og HK/Ýmir og það verður spennandi að sjá hverja við fáum.
Þess má geta að strákarnir eiga aftur leik í kvöld á Blönduósvelli klukkan átta á móti Skallagrím í Íslandsmótinu. Þannig að það erum að gera að skjótast yfir á Blönduós og hvetja strákana áfram.
/Tindastóll.is