Hinn árlegi Canondagur Tengils á föstudaginn

Canon-dagur Tengils og Nýherja verður föstudaginn 8.apríl næstkomandi. Starfsmenn Tengils og Nýherja verða í dúndurstuði í Kjarnanum en þar verður margt spennandi í gangi allan daginn, m.a. ljósmyndamaraþon og keppni í Guitar Hero og FIFA 2011. Þátttakendur eiga mögueika á að vinna til veglegra verðlauna.

Einnig getur þú mætt í Tengil með myndina þína og fengið hana útprentaða. Sérfræðingar veita ráðleggingar um val á myndavélum, linsum, prenturum, pappír og tölvum svo fátt eitt sé nefnt. 

Ljósmyndamaraþon
Þú mætir með stafrænu myndavélina þína í verslun Tengils Kjarnanum. Við skráningu sem hefst kl. 13 og stendur yfir fram eftir degi, fá þáttakendur afhentar allar upplýsingar um myndefni og leikreglur maraþonsins. Vegleg verðlaun i boði.

PlayStation-keppni
Keppt verður í Guitar Hero og FIFA 2011.

Skráningar hefjast kl.14. Spennandi verðlaun í boði.

Græjuleikur Tengils verður í gangi þar sem fjöldi veglegra vinninga er í boði. Má þar nefna prentara, mýs, minniskort, USB lykla og margt margt fleira. Eina sem þarf að gera er að skrá sig á þátttökuseðil sem er hægt að nálgast í afgreiðslu Tengils og skila miðanum svo í græjupott þarsem nöfn vinningshafa verða dregin út.

Dagskrá Canon-dagsins

  • Kl. 13:00 -           Skráningar í keppnir og atburði dagsins hefjast.
  • Kl. 13:30 -           Ljósmyndamaraþon hefst.
  • Kl. 16:00 - 17:00 Keppni í FIFA 2011.
  • Kl. 17:30 - 18:30 Keppni í Guitar Hero.
  • Kl. 19:00 - 20:00 Úrslit dagsins kynnt og verðlaun afhent.

Fleiri fréttir