Hippaball á Ketilási
Árið 2008 var endurvakin gömul hefð í Félagsheimilinu Ketilási í Fljótum með því að endurvekja sveitaballastemningu og halda útimarkað. Síðan 2008 hafa verið haldin árlega hippaböll í Ketilási þar sem fólk frá Ólafsfirði, Siglufirði, Sauðárkróki, Hofsósi, Fljótum og víðar hefur komið saman og skemmt sér við tónlist frá hippatímabilinu og haldið útimarkað og fleira.
Mikil stemning hefur verið á þessum böllum og árið 2008 mættu rúmlega 200 manns þar sem hljómsveitin Stormar frá Siglufirði hélt uppi þéttri stemningu.
Ketilás er félagsheimili Fljótamanna, við gatnamót Lágheiðar sem liggur milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og var aðal leiðin áður en Héðinsfjarðargöngin komu. Á árum áður spiluðu hljómsveitir á borð við Flamingo og Stormar á Hlöðudansleik og voru sætaferðir frá Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkróki.
Í ár er svo hippaballið haldið í sjöunda skiptið og er fólk hvatt til að mæta og tjalda, taka þátt í markaði, hitta gamla vini, kynnast nýjum vinum, hlusta á góða tónlist og njóta náttúrunnar. Hljómsveitin Flower Power leikur fyrir dansi á þessum sögufræga stað. Hljómsveitin er sett saman fyrir þennan einstaka viðburð.
Yfir daginn er tilvalið að kíkja á markaðinn Norðurport lifandi markaður sem verður á Ketilási og þar er að finna matvörur og ýmislegt handverk ásamt fatnaði. Áður en ballið byrjar verður sungið úti friðarsöngurinn Allt sem við viljum er friður á jörð.
Markaðurinn stendur frá 13-16 og ballið frá 22-02. Skráning á markað er í síma 618-9295 margr.tr@simnet.is.