Hitaveituframkvæmdir á lokastigi
Skagafjarðarveitur hafa að mestu lokið hitaveituframkvæmdum sem unnið hefur verið að í Sæmundarhlíðinni.
Á heimasíðu Skagafjarðarveitu kemur fram að hitaveitan hafi verið lögð í 13 hús, nokkur útihús og vélaskemmur. Efnið í hitaveituna kom frá Set ehf. á Selfossi og Vinnuvélar Símonar Skarphéðinssonar ehf. sáu um jarðvinnu og tengingar utandyra. Starfsmenn Skagafjarðarveitna munu koma dælustöð fyrir við Skörðugil og tengigrindum í húsunum.
Verkið hefur gengið vonum framar og er verktakinn nokkuð á undan áætlun, samkvæmt vefsíðu Skagafjarðarveitu. Áætlaður heildarkostnaður verksins er um 45 milljónir króna.