Hjalti Arnarsson sundmaður Tindastóls

Það var glatt á hjalla á uppskeruhátíð Sunddeildar Tindastóls sem haldin var í gær, miðvikudaginn 9. febrúar 2011. Að venju komu sundmenn og foreldrar saman og áttu saman stund yfir kvöldverði.  Hefð er fyrir því að allir iðkendur fái gjöf frá deildinni á uppskeruhátíð. 

Að þessu sinni fékk sundfólkið handklæði sem merkt var með nafni sundmanns og Sunddeildarinnar.  Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu. 

 

Thelma Björk Sverrisdóttir hlaut viðurkenningu  fyrir ástundun. 

Victoria Lazar Sorinsdóttir fékk bikar fyrir mestu tæknilegar framfarir.

Þorgrímur Svavar Runólfsson hlaut viðurkenningu sem prúðasti sundmaðurinn. Augljóslega var innistæða fyrir þeirri viðurkenningu þar sem sundmaðurinn brá á leik og faðmaði þjálfara sinn af mikilli gleði þegar viðurkenningin var afhent. 

Hjalti Arnarsson var svo valinn sundmaður Tindastóls.

Myndir og texti: Katrín María

Fleiri fréttir