Hjalti og Lára í Hóladómkirkju

Tónleikar verða í Hóladómkirkju næstkomandi sunnudag kl. 14. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir syngja og leika á fiðlu og gítar. Allir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis.

Um morguninn kl. 11 verður messa í Hóladómkirkju. Prestur er sr. Ólafur Hallgrímsson. Organisti er Jóhann Bjarnason. Hægt verður að kaupa súpu og salat á veitingastaðnum Undir Byrðunni í hádeginu.

 

Fleiri fréttir