Hjartastuðtæki í Hús Frítímans

Félagar í Lionsklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í Hús Frítímans í síðustu viku en Lionsfélagar afhentu hjartastuðtæki sem ætlað er til þess að auka öryggi gesta hússins.

Það voru þeir Símon Skarphéðinsson, Bragi Haraldsson, og Jón Edvald Friðriksson sem mættu fyrir hönd Lions félaga og færðu Ivano Tasin forstöðumanni hússins tækið. Stafsmenn í Húsi frítímans vilja kom á framfæri þakklæti til Lionsmanna fyrir veittan stuðning.

Fleiri fréttir