Hjólið kemur ekki 17. maí

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Mynd: KSE
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Mynd: KSE

Til stóð að Lionsmenn, ásamt starfs- og heimilisfólki Dvalarheimilisins á Sauðárkróki, myndu afhenda Dvalarheimilinu hjól sem útbúið er til að hjóla með heimilisfólk Dvalarheimilisins, í næstu viku. Það dregst þó eitthvað og verður viðburði sem auglýstur var af þessu tilefni þann 17. maí frestað um óákveðinn tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum verkefnisins.

 

Fleiri fréttir