Hlakka til að hjóla um bæinn og sjá mannlífið

Hjólið er rafknúið og getur hjólreiðamaður verið með tvo fyrir fram sig.
Hjólið er rafknúið og getur hjólreiðamaður verið með tvo fyrir fram sig.

Starfs- og heimilisfólki dvalarheimilisins á Sauðárkróki hrintu af stað söfnun fyrir nýju hjóli. Ekki er um hefðbundið reiðhjól að ræða heldur rafknúið hjól sem tekur farþega. Flytja þarf hjólið inn frá Danmörku og er það væntanlegt til Íslands í mars- eða aprílmánuði en því fylgir mikill kostnaður.

Þær stöllur, Ásta Karen Jónsdóttir sjúkraliða á dvalarheimilinu og Anna Pálína Þórðardóttir, pöntuðu hjólið í gegnum tengilið í Reykjavík, Sesselju Traustadóttur, framkvæmdastjóra Hjólafærni á Ísland. Ásta segir hjólið vera mjög dýrt, að það kosti á bilinu 800 til 950 þúsund með öllu hingað komið. Svo þarf að kaupa þrjá hjálma, vesti fyrir hjólreiðamanninn o.fl.“  Ásta segir söfnunina ganga prýðisvel, henni sé ekki lokið en hún segist vera bjartsýn að þetta hafist.

„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir aldraðan einstakling, sem er kannski oftast nær fastur innan fjögra veggja, að geta farið út og hvað þá að geta hjólað um fallega bæinn okkar, séð mannlífið og fá ferska loftið í andlitið,“ bætir Ásta við. 

Þá vill starfs- og heimilisfólk dvalarheimilisins koma þökkum til þeirra sem hafa séð sér fært að veita söfnuninni lið og jafnframt minna á söfnunarreikninginn, en það er Lions á Sauðárkróki sem hafa haldið utan um söfnunina. Söfnunarreikningurinn er:  0161-05-070570, kt. 431290-2199.

Viðtalið við Ástu Kareni má lesa í Feyki vikunnar en þar segir hún m.a. hvernig hugmyndin kviknaði af kaupum hjólsins og hvernig sumarið leggist í heimilisfólk dvalarheimilisins. 

Fleiri fréttir