Hlýindi gætu valdið aur- og skriðuföllum
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur varað við hugsanlegum aur- og skriðuföllum á norðurlandi. Að auki er mikið vatn í ám og lækjum. Varasamt getur verið að vera á ferð í hlíðum fjalla og sérstakrar varúðar er þörf nálægt ám og vötnum. Minnstu lækir eru orðnir illúðlegir af vatnavöxtum. Vernharð Guðnason hjá Almannavarnanefnd Skagafjarðar segir að ekki hafi orðið vart við aurflóð né skriðuföll hér í Skagafirði enn sem komið er en fylgst verði áfram með ástandinu þar sem spáð er hlýindum áfram.
Vernharð segir að vatnsfylltir skurðir séu hættulegir lambfé, sérstaklega þar sem sumstaðar er þunnt snjólag yfir og hefur þegar orðið tjón þar sem lömb hafa lent í vatnsfylltum skurðum og drepist.
-Almannavarnanefnd Skagafjarðar óskar eftir upplýsingum frá almenningi, í síma 453 5425, ef vart verður við aurflóð eða skriðuföll, eins ef ár flæða yfir bakka sína. Héraðsvötnin eru sömuleiðis farin að breiða nokkuð úr sér og því mikilvægt að gæta að því að búfé verði ekki innlyksa, segir Vernharð.