Hnúfubakur fastur í netatrossu í Skagafirði

Skipstjórinn á Gammi SK 12 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð gæslunnar við að losa hnúfubak sem hafði fest sig í netatrossu sem hann var að draga í Skagafirði.

Samkvæmt vef Landhelgisgæslunnar hafði skipstjórinn reynt að losa hann sjálfur en hafði við það tapað hakanum sínum þegar hvalurinn sló hann frá sér með sporðinum. Taldi hann sig því ekki eiga annara kosta völ en að óska eftir aðstoð.

Erfiðlega gekk að nálgast hvalinn þar sem hann reyndi að synda sig lausann með tilheyrandi buslugangi og látum. Varðskipsmenn náðu síðan að skera á teininn svo hnúfubakurinn losnaði.

Myndband og myndir frá björgunaraðgerðunum er að finna á vef Landhelgisgæslunnar.

Fleiri fréttir