Höfði skorar á Lionsklúbb Skagafjarðar
feykir.is
Skagafjörður
28.03.2014
kl. 10.50
Lionsklúbburinn Höfði á Hofsósi býður 15 þúsund krónur í Mottumars slaufuna sem félagar úr Karlakórnum Heimi gáfu til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar á dögunum. Höfði skorar á Lionsklúbb Skagafjarðar að toppa boð þeirra.
Nú er um að gera að bjóða í slaufuna og um leið styrkja gott málefni. Boð í slaufuna eiga að sendast á netfangið feykir@feykir.is.