Hofsósskirkja fær góða gjöf

Frá afhendingu gjafanna: Frá vinstri: Steinar Már Björnsson, Jón Ágúst Björnsson, Björn Níelsson, Guðmundur Kr. Sigurbjörnsson, Brynjar Örn Guðmundsson, Guðrún Elín Björnsdóttir, Kristín Bjarnadóttir og Halla Rut Stefánsdóttir. Bróðir Unnar Bettýar, Björn Svavar, og systkin Guðrúnar, Níels Ragnar og Hrefna Björg gátu ekki verið viðstödd afhendinguna.

Hofsósskirkju voru nýlega færðar góðar gjafir þegar hjónin Guðrún Elín Björnsdóttir og Guðmundur Kristján Sigurbjörnsson ásamt föður og systkinum Guðrúnar, færðu kirkjunni að gjöf tvo blómavasa til minningar um dóttur Guðrúnar og Guðmundar, Unni Bettý, sem fórst í bílslysi þann 28. ágúst 2006, tæplega 19 ára gömul.

Björn Níelsson, faðir Guðrúnar, afhenti sr. Höllu Rut Stefánsdóttur, sóknarpresti á Hofsósi og Kristínu Bjarnadóttur, formanni sóknarnefndar, gjafirnar. Vasarnir eru gerðir úr járnviði og var það kunningi Björns sem renndi þá. Séra Halla þakkaði fjölskyldunni gjafirnar og þann hlýhug sem kirkjunni er sýndur með þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir