Horft verður til niðurstöðu rannsókna Umhverfisstofnunar á gúmmíkurli
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar tók til umræðu gúmmíkurl á íþróttavöllum á fundi sínum í dag. Á fundinum var lagt fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 14. mars 2016 varðandi þingsályktunartillögu um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum.
„Ekki liggur fyrir hvaða gúmmíefni uppfylla það skilyrði að vera viðurkennd en ljóst má vera að slíkt er grundvallaforsenda fyrir því að hægt sé að fá niðurstöðu í málið til framtíðar litið að slík efni séu til staðar.
Byggðarráð mun fylgjast vel með framvindu þessa máls og telur eðlilegt að horft verði til niðurstöðu rannsókna Umhverfisstofnunar á því hvaða efni setja eigi í stað dekkjakurlsins en slík vinna er nú í gangi hjá stofnuninni. Er það von ráðsins að niðurstaða fáist í málið sem fyrst.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að skipt verði út gúmmíkurli úr dekkjum á íþróttavöllum sveitarfélagsins, þ.e.a.s. á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki og í Varmahlíð ef niðurstöður Umhverfisstofnunar leiða í ljós skaðsemi kurlsins,“ segir í fundargerð Byggðarráðs.