Gert ráð fyrir hótelbyggingu, heilsurækt og fjölnota íþróttahúsi í deiliskipulagi

Gerð hefur verið skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Flæðar og íþróttasvæðið við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að skipulagslýsingin gerir ráð fyrir nýju deiliskipulagi á skipulagssvæðinu, nýjum byggingarreitum, stækkun og breytingum á núverandi byggingarreitum. Feykir hefir áður greint frá að umrædd skipulagslýsing var samþykkt á fundi Skipulags- og byggingarnefndar þann 23. júní og á fundi sveitarstjórnar þann 29. júní 2016.
Í skipulagslýsingu deiliskipulags Flæða og íþróttasvæðis kemur fram að svæðið sem deiliskipulagið nær til afmarkist af Skagfirðingabraut að austan, lóðunum við Suðurgötu með Faxatorg að norðan, Nöfunum að vestan og skólalóð Árskóla að sunnan. Svæðið tekur til Faxatorgs, Flæða og sundlaugar- og íþróttasvæðis. Skipulagssvæðið er alls um 7,3 ha að flatarmáli.
„Markmið fyrirhugaðs deiliskipulags er að fá fram heildstætt skipulag fyrir Flæðar og aðliggjandi byggð í sátt og samlyndi við aðliggjandi byggð. M.a. er gert ráð fyrir nýrri hótelbyggingu ásamt byggingu undir heilsurækt tengdri sundlaug bæjarins. Jafnframt mun deiliskipulagið skapa ramma um væntanlegt nýtt fjölnota íþróttahús á íþróttasvæði bæjarins. Í deiliskipulaginu verður gerð grein fyrir lóðamörkum, aðkomuleiðum, byggingareitum, nýtingarhlutfalli, bílastæðum og öðrum þeim ákvæðum sem ástæða verður til að skilgreina í deiliskipulagi á svæðinu falli vel að fyrirliggjandi umhverfi á svæðinu,“ segir í skipulagslýsingu.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins og verður til sýnis í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut frá 6. - 26. júlí.
Skriflegum ábendingum við skipulagslýsinguna skal skila til skipulags – og byggingarfulltrúa í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut eigi síðar en 26. júlí 2016.