Hræ af um fimm metra löngu marsvíni

ilkynnt var um hvalreka í landi Mallands á Skaga sl. sunnudag. Þegar lögregla og landeigendur komu á staðinn á mánudagsmorgun reyndist vera hræ af um fimm metra löngum hval í fjörunni rétt norðan við fjárhúsin á bænum. 

Eftir mynda- og sýnatökur lögreglu þykir líklegast að um marsvín sé að ræða, að sögn Stefán Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki.Stefán segir það verklagsreglur að þegar hval reki á land sé haft samband við lögreglu, sem kemur á staðinn og sér um samskipti við þá aðila sem koma að málinu. Hann segir að nú sé beðið svars frá umhverfisstofnum hvað skuli gera við hræið en líklegast sé að það verði urðað á staðnum.

Fleiri fréttir