Hræddar um að renna niður gilið

Þrjár stúlkur sluppu ómeiddar þegar bíll þeirra valt á Þverárfjallsvegi um síðustu helgi. Bíllinn valt þrjár til fjórar veltur, út fyrir veg, og stöðvaðist á hjólunum á gilbarmi. „Mikið Guðs lán að ekki varð þarna dauðaslys,“ sagði talsmaður lögreglunnar á Sauðárkróki í samtali við Feyki.

Samkvæmt lögreglunni var hvasst þegar slysið varð og hálkublettir á veginum, en bílveltan átti sér stað skammt frá bænum Þverá. Það hafði skafið með vegriði og bíllinn oltið við það að lenda í snjónum.

„Þegar við nálgumst endann á vegriðinu verður allt hvítt, sem sagt það kemur sterk vindhviða sem feykir með sér snjó svo útsýnið verður mjög takmarkað. Um leið og það gerist keyrum við í frekar háan snjó eða drift eins og það kallast víst, við það missir bíllinn grip. Hálkan sem var fyrir á veginum var ekki til að hjálpa og ég missi stjórn á bílnum þegar við komum útfyrir vegriðið,“ segir Snæbjört Pálsdóttir tvítug stúlka frá Sauðárkróki en hún var ökumaður bílsins.

Snæbjört var á leið til Reykjavíkur í æfingaferð með meistaraflokki kvenna í fótbolta, ásamt systur sinni Hugrúnu Pálsdóttur 16 ára og frænku Maríönnu Margeirsdóttur 17 ára. Hefði bíllin farið eina veltu enn eða endað á toppnum hefði hann líklega runnið niður gilið, því það var svo mikið harðfenni.

Viðtal við Snæbjörtu er að finna í nýjasta tölublaði Feykis.

 

Fleiri fréttir