Hrafnhildur K. Jóhannsdóttir sigraði í Söngvarakeppni 2012
Söngvakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra fór fram á laugardag í Félagsheimilinu Hvammstanga. Úrslit á yngra stigi (4. -7. bekkur) urðu þau að í 1. sæti varð Hrafnhildur K. Jóhannsdóttir, í 2. sæti Ástríður Halla Reynisdóttir og í 3. sæti hafnaði Dagrún Sól Barkardóttir.
Hljómsveitin Wildberry frá Hvammstanga bar heiðurinn af undirbúningi nemenda og tónlistarflutningi á keppninni en hljómsveitin hefur verið starfandi í allnokkurn tíma og tók m.a. þátt í Músíktilraunum 2006. Hana skipa fjórir fjörugir félagar, þeir Ásgeir, Kristinn, Birkir og Andri.
Brot af sigurlaginu má nálgast HÉR á heimasíðu Grunnskólans