Hrannar hlaut flugeldapottinn
Dregið var úr flugeldapotti Björgunarsveitarinnar Húnar í gær en vinningshafinn í ár var Hrannar Haraldsson og fékk hann pottinn afhendan í Húnabúð í gær.
Minnt er á að áramótabrennan og flugeldasýningin sem átti að vera á Hvammstanga gærkvöldi verður kl. 17:00 í dag, Nýjársdag, við Höfða sunnan Hvammstanga.