Hreinsun á vettvangi lauk um tvö leytið í nótt

Af vettvangi í Blönduhlíð þegar hreinsun var lokið í nótt. Mynd/Skeljungur.
Af vettvangi í Blönduhlíð þegar hreinsun var lokið í nótt. Mynd/Skeljungur.

Olíuflutningabíll fór útaf veginum í Blönduhlíð í gærkvöldi, eins og greint hefur verið frá á feyki.is. Samkvæmt upplýsingum frá Skeljungi slapp ökumaðurinn með skrámur þegar bíllinn hafnaði á hvolfi utan vegar við Höskuldsstaði. Aðgerðir á slysstað gengu vel og búið að koma bílnum af vettvangi. Öll hreinsun var kláruð um klukkan tvö í nótt.

Í bílnum voru 28.900 lítrar af gasolíu en talið er að óverulegt magn hennar hafi lekið úr bílunum og tengivagni hans við óhappið. Samkvæmt viðbragðsáætlun Skeljungs voru kallaðir til bílar með tæki til að hreinsa staðinn en stefnt er að því að fjarlægja bílinn í nótt. Hugsanleg áhrif óhappsins á umhverfið verða metin í dag og þá verður brugðist við aðstæðum í samvinnu við heilbrigðisfulltrúa.

Tengdar fréttir:

Um­hverf­is­spjöll­ af völdum olíuflutningabíls liggja ekki fyrir - FeykirTV

Olíubíll fór útaf við Höskuldsstaði

Fleiri fréttir