Hrekkjavökupartý á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
06.11.2015
kl. 10.04
Síðasta laugardag var allsherjar hrekkjavökupartý í félagsmiðstöðinni Órion á Hvammstanga þar sem fagurlega skreyttar verur mættu til að skemmta sér og gæða sér á fingramat, í bókstaflegri merkingu, og öðru góðgæti. Frá þessu er sagt á vefnum Norðanátt.
Í búningakeppninni partýsins voru það vampírur sem skipuðu verðlaunasætin þrjú og var það Guðmar Hólm Ísólfsson sem hreppti fyrstu verðlaun. Í öðru sæti var Kaja Rós Sonjudóttir og Silja Reimarsdóttir í því þriðja. Að partýinu loknu þræddu krakkarnir svo götur Hvammstanga og bönkuðu uppá hjá íbúum í leit að gotteríi.
Erla Björg Kristinsdóttir tók meðfylgjandi mynd og nokkrar fleiri sem er að finna á Norðanátt.