Hrímnishöllin að færast í jólabúninginn
Jólamarkaðurinn á Varmalæk verður nú haldinn þriðja árið í röð, laugardaginn 10. desember nk. kl: 13 -18. Samkvæmt skipuleggjendum er allt að verða klárt og tilhlökkun á bæ en markaðurinn verður lifandi í orðsins fyllstu merkingu.
Að sögn Magneu Guðmundsdóttir frá Varmalæk verður margt spennandi er í boði sem getur komið sér vel í jólapakkann. Þar verður andlegt og veraldlegt fóður, söngur glens og gaman. Þar má nefna handverk úr Skagafirði og Húnavatnssýslum. Nokkur félög verða á staðnum með fjáröflun sína eins og Kvennalið Tindastóls með pappír og einhver sætindi. Lionsmenn verða með eðal-síld og Kvenfélagið í Lídó með rjúkandi vöfflur og súkkulaði. Svo verður 10. bekkur Varmahlíðarskóla með kökubasar.
Nokkur skemmtileg húsdýr verða í hesthúsinu, s.s. hestar, hænur, hvolpar og kálfar. „Nú vonum við að hún Selma Dís hallarkisan okkar verði á staðnum og feli sig ekki eins og í fyrra. Svo ætla jólasveinar að koma í heimsókn og óskaði móðir þeirra eftir að fá að kíkja við hjá okkur en hún vill hafa eftirlit með strákunum í þessari bæjarferð. Enginn þarf að óttast hana, þetta er hin vænsta kerling,“ sagði Magnea.
Boðið verður upp á tónlistaratriði um miðjan daginn og einnig geta gestir tekið þátt lukkuleiknum sem og fyrri ár.