HS fær bekk að gjöf

Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki garðbekk að gjöf í gær.

Herdís Klausen, framkvæmdastjóri hjúkrunar, veitti bekknum formlega viðtöku fyrir hönd Heilbrigðisstofnunarinnar.

Bekkurinn er staðsettur sunnan við Heilbrigðisstofnunina og á honum er skilti með áletrunina: „Góð áning við vinarþel“.

Sigríður Svavarsdóttir, Herdís Klausen, Ingunn Ásdís Sigurðardóttir og Kristjana E. Jónsdóttir tilla sér á nýja bekkinn.

Fleiri fréttir