HS fær ennþá einna minnst í sinn hlut

Samkvæmt fjárframlögum ríkisins til heilbrigðismála eftir aðra umræðu á Alþingi er framlag þess til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki með því allra lægsta sem gerist á landsvísu miðað við íbúafjölda eða samtals tæpar 180 þúsund krónur á mann ef tekið er tillit til hjúkrunarheimila á starfssvæði hverrar stofnunar. Ennþá vantar 140 – 406 millj. kr. til að HS standi jafnt að vígi varðandi fjárveitingar.  

 

Ef borin eru saman þau svæði sem tekin eru út í skýrslu Capacent má sjá að um 34 þúsund krónur á mann skilur að Skagafjörð og það svæði sem næst er. Þar sem framlag er hæst er munurinn rúmar 95 þúsund krónur á íbúa. Ef við leikum okkur að þeim tölum og margföldum þá upphæð með íbúafjölda Skagafjarðar (4260) ætti framlag til HS að vera rúmlega 406 milljónum hærra en er í dag í stað þess að skerðast eins og raunin er.

Skerðing á fjárframlagi ríkisins til HS minnkaði um 23,6 miljón milli fyrstu og annarrar umræðu fjárlagafrumvarpsins og var að sögn Hafsteins Sæmundssonar framkvæmdastjóra HS  með því hægt að tryggja heimahjúkrun á svæðinu. Ljóst sé hins vegar að starfsemi endurhæfingarinnar verður skert verulega. Aðspurður segir Hafsteinn það þýða að sundlauginni verður lokað sem og að önnur starfsemi endurhæfingarinnar dregst verulega saman. Þá er reiknað með að komum farandsérfræðinga fækki verulega frá því sem verið hefur.

Örn Ragnarsson yfirlæknir segir að þar sem rekstur sjúkrahúss, heilsugæslu og öldrunarþjónustu er undir sama þaki og ýmis þjónusta samnýtt sé hann hagkvæmur. Kostnaður kann að vera misjafn milli svæða en óréttlætið er samt til staðar, t.d. er reiknuð þörf  fyrir 49 hjúkrunarrýmum í umdæmi HS en einungis er gert ráð fyrir  41 hjúkrunarrými. Reynt hefur verið að fá útskýringar á þessum mun í velferðarráðuneytinu en ekki fengist.

Herdís Klausen hjúkrunarforstjóri segir að dregið hafi verið úr þjónustu. Fæðingar eru ekki lengur á stofnuninni og viðvera ljósmæðra minni en var. Dregið hefur verið úr mönnun á öllum deildum, breytingar gerðar á bakvöktum á röntgen og rannsókn og jafnvel búið að skerða laun starfsmanna. Dregið hefur verulega úr ákveðinni sérfræðiþjónustu svo sem geðlækningum. Einnig hefur verið dregið úr þjónustu heilsugæslunnar á Hofsósi. Herdís segir að leyfi sé fyrir því að reka sjö sjúkrarúm hjá HS en þeim hefur verið fækkað um átta samkvæmt ákvörðun velferðarráðuneytisins.

Fleiri fréttir