Húfur í þúsundavís til viðskiptavina

Á heimasíðu VÍS segir að óhætt sé að fullyrða að VÍS-húfurnar sem kynntar voru fyrir nokkrum vikum hafi slegið í gegn. Hátt í 15 þúsund húfum hefur verið dreift um allt land og viðskiptavinir með F plús svo sannarlega tekið þeim opnum örmum. Miðað við íbúafjölda skarta hlutfallslega flestir Skagfirðingar og Hornfirðingar ásamt nærsveitungum þessari höfuðprýði sem og allir Grímseyingar á grunn- og leikskólaaldri.

 

Enn eru til húfur á þjónustuskrifstofunum en nú fer hver að verða síðastur að næla sér í. Fjórar tegundir húfa voru í boði: með eldingu, demanti, geimverum og kanínum.

Á meðfylgjandi mynd eru glaðbeittir Ólafsvíkingar; bræðurnir Þráinn og Helgi Sigtryggssynir og Melkorka Sævarsdóttir.

Fleiri fréttir