Hugað að geymslusvæði á Hofsósi
Á 107. fundi umhverfis- og samgöngunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem haldinn var í byrjun febrúar voru lagðar fram til kynningar teikningar sem sýna mögulega staðsetingu á geymslusvæði á Hofsósi.
Drögin gera ráð fyrir tveimur mögulegum staðsetningum á geymslusvæði, sunnan og norðan við áhaldahús við Norðurbraut. Gert er ráð fyrir að svæðið verði með svipuðu sniði og geymslusvæði á Sauðárkróki, það verði afgirt og læst og hægt verði að leigja pláss á svæðinu gegn vægu gjaldi.
Utan girðingar við geymslusvæði er gert ráð fyrir að staðsetja ruslagáma sem í dag eru staðsettir við áhaldahús og norðan við Pardus á Hofsósbraut. Lagði nefndin til að geymslusvæðið yrði staðsett norðan við áhaldahús.