Húnar aðstoða vegfarendur á Holtavörðuheiði
Björgunarsveitin Húnar frá Hvammstanga aðstoðuðu vegfarendur á Holtavörðuheiði sem lentu þar í vandræðum í gærkvöldi og treystu sér ekki lengra en samkvæmt heimasíðu Húna var þar leiðindaveður og skyggni lítið.
Fyrra kallið barst kl. 22:45 en sá vegfarandi hafði lent í vandræðum í háheiðinni og treysti sér ekki lengra án aðstoðar. Húnar lögðu af stað á Ford Econoline frá Borðeyri og gekk vel að aðstoða manninn norður af heiðinni niður í Staðarskála.
Seinni aðstoðarbeiðnin barst kl. 01:00 í nótt þar sem annar vegfarandi á heiðinni hafði lent í vandræðum. Þá var farið frá Hvammstanga á Húna 2 - Ford Excursion og segja Húnar að vel hafi gengið að aðstoða fólkið og koma því til byggða.