Húnar aðstoða við umferðaróhapp í Bitrufirði

Björgunarveitin Húnar var kölluð til þegar flutningabíll á leið til Hólmavíkur fór útaf í Bitrufirði. Samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar þótti það kraftaverki líkast að bílstjórinn hafi sloppið ómeiddur úr slysinu.

Fram kemur á heimasíðunni að kallið hafi borist kl. 23:30 á miðvikudagskvöld en óhappið varð rétt sunnan við Þambárvelli í Bitrufirði. Stórtjón varð á flutningabílnum þar sem farmurinn hafði gengið framúr flutningskassanum og svipt ökumannshúsinu af bílnum. Eins og fyrr segir slapp bílstjórinn ómeiddur utan smá skrámu á hendi.

Farmurinn á bílnum var frosin rækja og þurftu björgunarsveitarmennirnir að hafa snör handtök til að bjarga honum. Verkefnið gekk vel miðað við aðstæður.

Fleiri fréttir