Húnar bjarga þýskum ferðamanni af Holtavörðuheiðinni
Um kl 21:20 í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Húna í Vestur-Húnavatnssýslu er þýskur ferðamaður lenti í hremmingum norðan í háheiðinni þegar hann lenti utan vegar á bíl sínum.
Farið var á Húna 4 frá Borðeyri og bíllinn dreginn upp á veginn og gat ferðamaðurinn haldið ferð sinni áfram. Þetta er í þriðja skipti í vikunni sem björgunarsveitin fer til aðstoðar á heiðinni en mikið óveður hefur herjað á vegfarendur hennar undanfarna daga. Það segir á heimasíðu Húna að næstum þrjú ár eru liðin síðan sveitin var síðast á heiðinni til að aðstoða fólk vegna ófærðar.