Húnar hreinsa til eftir gamlaárskvöld

Það er venjulega fyrsta verkefni ársins hjá Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga að hreinsa upp flugeldaruslið eftir skothríðina á gamlárskvöld. Þegar farið er í þessa hreinsunarferð þá hefur ekki vantað aðstoðarfólkið því venjulega bíður stór krakkahópur eftir því að fá að að taka þátt í þessu með björgunarsveitinni, segir á vef Landsbjargar.

Bæjarbúar hafa áður verið beðnir um að skilja flugeldaruslið eftir við lóðarmörk og gengur því yfirleitt hratt og vel að hreinsa upp ruslið. En þetta var þó ekki fyrsta verkefnið á árinu, en vegfarandi sem var á ferðinni í Hrútafirði á Nýjársdagsmorgun lenti í hremmingum og lenti utan vegar, farið var á björgunarsveitarbíl sem staðsettur er á Borðeyri á staðinn og umræddum vegafaranda hjálpað til að halda för sinni áfram, segir ennfremur á landsbjorg.is.

Fleiri fréttir