Húnar í stórræðum

Mikið hefur verið að gera hjá Björgunarsveitinni Húnum í Húnaþingi vestra undanfarið en í gær var óskað eftir aðstoð hennar  upp úr tíu í gærkvöld vegna umferðaróhapps á þjóðvegi 1 norðan við Melstað í Miðfirði. Þar hafði flutningabíll lent þversum á þjóðvegi 1 og stöðvaði alla umferð um tíma. Einnig lenti fólksbíll utan vegar á sömu slóðum.

Á heimasíðu björgunarsveitarinnar segir að vel gekk að leysa verkefnið og var búið að opna aftur fyrir umferð um ellefu leytið.

Þann  28.febrúar var haldin afmælisæfing sveitarinnar og var björgunarsveitum  á svæði 9 boðið með í æfinguna en Húnar fagna 5 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni dagsins  var haldið upp á afmælið með stórri hnallþóru úr Brauð og kökugerðinni á Hvammstanga.

Á mánudaginn óskaði lögregla eftir því að sveitin aðstoðaði ferðalang sem lenti utan vegar á bíl sínum á Hrútafjarðarhálsi en bíllin var illa fastur utan vegar við Svertingsstaðá og mátti litlu muna að hann lenti í krapanum í ánni. En allt fór vel að lokum segir á heimasíðunni og gekk vel að koma bílnum upp á veg aftur.

Fleiri fréttir