Húnaþing vestra samþykkir úthlutunarreglur vegna byggðakvóta
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var sl. mánudag voru samþykktar eftirfarandi reglur um úthlutun 66 þorskígildistonna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2011/2012 þar sem ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 2011 gilda með eftirfarandi viðaukum/breytingum:
a) Byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 675/2009 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1182/2011 frá 21. desember 2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Skipting er eftirfarandi: 35% er skipt jafnt milli ofangreindra skipa og 65% milli ofangreindra skipa þannig að til viðmiðunar verði löndunarhæsta ár útgerðar í Hvammstangahöfn í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár nú 2008/2009, 2009/2010 og 2010/2011.
b) Vinnsluskylda samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 er felld niður og því orðast 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar þannig: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess afla-marks sem þau fá úthlutað ... o.s.frv.
Rökstuðningur/viðaukar/breytingar frá reglugerð 1182/2011 er felast í tillögum Húnaþings vestra eru eins og sérákvæði Húnaþings vestra voru endanlega hvað varðar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010. Hvað a) lið varðar þá er um sömu ákvæði að ræða og s.l. fiskveiðiár, rökstuðningur úthlutun byggðakvóta til Húnaþings vestra er vegna skerðingar í veiðum og vinnslu á rækju. Hvað b) lið varðar þá er rökstuðningur sveitarstjórnar sá að í byggðarlaginu er engin bolfiskvinnsla.
/Hunathing.is