Húnaþing vestra styrkir Selasiglingu ehf.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ákveðið að veita Selasiglingu ehf. styrk að fjárhæð 500 þúsund krónur en þetta var samþykkt á 195. fundi Sveitarstjórnar Húnaþings vestra, sem haldinn var 9. febrúar sl.

Styrkurinn er veittur í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækisins en samkvæmt fundargerð var tillagan samþykkt með 5 atkvæðum.

Á fundinum var þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, 2013, 2014 og 2015 fyrir aðalsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki, jafnframt samþykkt með 7 atkvæðum.

 

Fleiri fréttir