Hundasýning og rabbarbarakeppni á SveitaSælu

Landbúnaðarsýningin Sveitarsæla verður haldin í Skagafirði um næstu helgi. Að sögn Steinunnar Gunnsteinsdóttur, verkefnastjóra sem sér um sýninguna í ár, er Sveitasæla að vaxa og þróast og alltaf eitthvað nýtt af nálinni á hverju ári.

Opið verður í Reiðhöllinni Svaðastöðum frá klukkan 10 til 17:30 á laugardaginn, en Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun setja Sveitasælu formlega klukkan ellefu um morguninn.

Steinunn er menntuð sem ferðamálafræðingur frá Hólum, þar sem viðburðastjórnun er hluti af náminu. Hún segir forsvarsmenn Flugu, sem rekur Reiðhöllina Svaðastaði, hafa vitað af sér og því fengið sig til að sjá um Sveitasæluna þetta árið. Hún segir verkefnið skemmtilegt og undirbúning hafa gengið vel. Rætt er við Steinunni í nýjasta tölublaði Feykis, sem út kom í dag.

Fleiri fréttir