Húnvetningar í úrslit í Skólahreysti
Í gær fóru fram síðustu fjórir undanriðlarnir í Skólahreysti í Austurbergi í Reykjavík. Þau Elmar Baldursson, Guðni Þór Skúlason, Guðrún Helga Magnúsdóttir og Rakel Ósk Ólafsdóttir kepptu fyrir hönd Grunnskóla Húnaþings vestra og gekk vel. Þau gerðu sér lítið fyrir enduðu með 31 stig sem kom þeim á topp riðilsins.
Þessi glæsilegi árangur fleytir þeim áfram í úrslitakeppnina sem haldin verður í Laugardalshöllinni í Reykjavík þann 28. apríl nk. Þar munu 12 lið mæta klár í slaginn í þeirri von að hreppa titilinn Skólahreystimeistarar árið 2011.
Árangur þeirra í einstökum þrautum var sem hér segir:
- Upphýfingar - 18 stk.
- Dýfur - 20 stk.
- Hraðaþraut - 02:42 mín.
- Armbeygjur - 41 stk.
- Hreystigreip - 02:48 mín.
/Norðanátt