Húnvetnsku liðakeppninni lokið
Á föstudagskvöldið fór fram lokakeppni Sparisjóðs-liðakeppninnar á Hvammstanga er keppt var í tölti. Gríðarleg stemming var á pöllunum og vilja margir meina að aldrei fyrr hafi töltmótið verið jafnt sterkt en all voru 104 keppendur skráðir til leiks.
Það var lið 3, Víðidalur, sem stóð uppi sem sigurvegari Sparisjóðs-liðakeppninnar 2011 með yfirburðum eða 212,5 stigum, í 2. sæti varð lið 2 með 173 stig, í 3. sæti varð lið 1 með 128 stig og lið 4 í 4. sæti með 87,5 stig.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. flokkur
A-úrslit eink fork/úrslit
- 1 Ólafur Magnússon / Gáski frá Sveinsstöðum 7,57 / 8,22
- 2 Fanney Dögg Indriðadóttir / Grettir frá Grafarkoti 7,33 / 7,78
- 3 Elvar Einarsson / Lárus frá Syðra-Skörðugili 7,13 / 7,67
- 4 Reynir Aðalsteinsson / Sikill frá Sigmundarstöðum 6,77 / 7,28 (sigraði B-úrslit)
- 5 Pétur Vopni Sigurðsson / Silfurtoppur frá Oddgeirshólum 4 6,97 / 7,00
B - úrslit
- 5 Reynir Aðalsteinsson / Sikill frá Sigmundarstöðum 6,77 / 7,33
- 6 James Bóas Faulkner / Brimar frá Margrétarhofi 6,93 / 7,17
- 7 Ísólfur Líndal Þórisson / Freymóður frá Feti 6,83 / 7,06
- 8 Þórir Ísólfsson / Kvaran frá Lækjamóti 6,77 / 6,83
- 9 Jóhann Magnússon / Punktur frá Varmalæk 6,80 6,72
2. flokkur
A-úrslit eink fork/úrslit
- 1 Þóranna Másdóttir / Gátt frá Dalbæ 6,57 / 7,00
- 2 Vigdís Gunnarsdóttir / Freyðir frá Leysingjastöðum II 6,13 / 6,67
- 3 Herdís Rútsdóttir / Taktur frá Hestasýn 6,30 / 6,61
- 4 Ingunn Reynisdóttir / Heimir frá Sigmundarstöðum 6,43 / 6,39
- 5 Kolbrún Stella Indriðadóttir / Vottur frá Grafarkoti 6,17 / 6,22
B-úrslit eink fork/úrslit
- 5 Vigdís Gunnarsdóttir / Freyðir frá Leysingjastöðum II 6,13 / 6,61
- 6 Halldór Sigfússon / Seiður frá Breið 6,10 / 6,44
- 7-8 Alma Gulla Matthíasdóttir / Drottning frá Tunguhálsi II 6,00 / 6,33
- 7-8 Paula Tillonen / Sif frá frá Söguey 6,13 / 6,33
- 9 Pálmi Geir Ríkharðsson / Greipur frá Syðri-Völlum 6,00 / 6,28
3. flokkur eink fork/úrslit
- 1 Selma H Svavarsdóttir / Hátíð frá Blönduósi 5,93 / 6,39
- 2 Rúnar Örn Guðmundsson / Kasper frá Blönduósi 5,67 / 6,39
- 3 Jón Ragnar Gíslason / Bleikur frá Bjarnastaðahlíð 5,77 / 6,28
- 4 Sigrún Þórðardóttir / Kolbrá frá Hafnarfirði 6,00 / 6,22
- 5 Ragnar Smári Helgason / Gæska frá Grafarkoti 5,60 / 5,83
Unglingaflokkur eink fork/úrslit
- 1 Ásdís Ósk Elvarsdóttir / Ópera frá Brautarholti 6,07 / 6,78
- 2 Helga Rún Jóhannsdóttir / Lávarður frá Þóreyjarnúpi 5,77 / 6,17
- 3 Guðmar Freyr Magnússun / Frami frá Íbishóli 5,37 / 6,00
- 4 Valdimar Sigurðsson / Berserkur frá Breiðabólsstað 5,33 / 5,83
- 5 Birna Olivia Ödqvist / Djákni frá Höfðabakka 5,275,72
EINSTAKLINGSKEPPNIN:
1. flokkur
- 1. sæti Tryggvi Björnsson með 26 stig
- 2. sæti Elvar Einarsson með 24 stig
- 3. sæti Reynir Aðalsteinsson með 23 stig
2. flokkur
1. sæti Vigdís Gunnarsdóttir með 17 stig 2. sæti Þóranna Másdóttir með 15 stig 3. sæti Halldór Pálsson með 14 stig
3. flokkur
1. sæti Selma Svavarsdóttir með 5,5 stig 2. sæti Ragnar Smári Helgason með 5,5 stig 3. sæti Sigrún Þórðardóttir með 3,5 stig
Unglingaflokkur
1. sæti Ásdís Ósk Elvarsdóttir með 13 stig 2. sæti Jóhannes Geir Gunnarsson með 8 stig 3. sæti Fríða Marý Halldórsdóttir með 5,5 stig
Eftirfarandi myndir tók Guðný Helga Björnsdóttir.
.