"Húsbíll" á ferð

Á ferðum sínum í síðustu viku rakst blaðamaður á þennan bíl á ferðinni um Sauðárkrók og var hann að flytja heldur óvenjulegan varning, eða heilt hús. Um er að ræða eina af lausu kennslustofunum sem stóðu við Árskóla.

Samkvæmt fundargerð byggðarráðs frá 17. október á síðasta ári keypti Skotfélagið Ósmann eitt af húsunum og mun það hafa verið þarna á ferð.

Fleiri fréttir