Hvað er lífhagkerfi?

Í dag kl. 16.00 verður fjallað um “lífhagkerfið” og hvaða tækifæri felast í lífhagkerfinu fyrir Skagafjörð á ráðstefnu í Verinu Vísindagörðum á Sauðárkróki, sem er öllum opin. Dr. Christian Patermann verður í Verinu frá kl. 16:00 til 17:15. Eftir stuttar kynningar fara fram umræður.

Meðal þátttakenda í pallborðsumræðum eru Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri, Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri og Friðrik Friðriksson, formaður stjórnar Matís.

Allir eru velkomnir að taka þátt í umræðu um hvaða tækifæri felast í lífhagkerfinu fyrir Skagafjörð. Nánari upplýsingar fást í gegnum netföngin gudrunk@matis.is og eva@matis.is.

Fleiri fréttir