Hvammstangadeild RKÍ gefur björgunarvesti

Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir afhenti fyrir hönd Hvammstangadeildar RKÍ, Pétri Arnarssyni hafnarverði, f.h. Hvammstangahafnar, tólf björgunarvesti fyrir krakka í hádeginu í dag. Vestin eru í tveimur stærðum og eru fyrir krakka sem eru að dorga/veiða í höfninni á Hvammstanga.

Sæunn segir í samtali við Norðanátt að þetta hafi byrjað þannig að þeim fannst leiðinlegt að sjá hversu margir krakkar voru ekki í björgunarvestum þegar þau voru að veiða í höfninni. „Ráðist var því í það að kaupa björgunarvesti hjá Ísfell til að hafa fyrir krakkana,“ segir Sæunn.

Björgunarvestin verða geymd í sérstökum skáp sem staðsettur verður utaná hafnarskúrnum á norðurbryggjunni en skápinn smíðaði Pétur sjálfur. Hann reiknar með því að skápurinn verði settur upp í dag eða á morgun og geta krakkarnir þá sótt sér vesti í skápinn.

Fleiri fréttir